Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara
Viltu vinna með skemmtilegu fólki og vera hluti af góðri liðsheild? Við leitum eftir öflugum og áhugasömum liðsmanni í okkar góða hóp í sjúkraþjálfun við Hringbraut. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og unnið er í dagvinnu.
Í sjúkraþjálfun við Hringbraut starfar samhentur og öflugur hópur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni starfa um 20 starfsmenn sem sinna fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu m.a. sjúklinga með hjartasjúkdóma, krabbamein, sjúklinga eftir skurðaðgerð, sjúklinga af barnadeildum, auk almennrar endurhæfingar eftir veikindi. Við tökum vel á móti nýjum samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið með því er að stuðla að betri heilsu og auka möguleika starfsfólks til að samþætta betur vinnu og einkalíf með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika.