Hjúkrunarfræðingur á sameinaðri endurhæfingardeild á Landakoti
Við leitum eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi á sameinaðri endurhæfingardeild K1 og L1 á Landakoti. Landkot er staðsett í rólegu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík, andinn í húsinu er einstakur og nálægð við mannlíf Miðborgarinnar er kostur eftir góða vinnudaga.
Hér er um spennandi tækifæri að ræða fyrir hjúkrunarfræðinga á nýsameinaðri endurhæfingardeild þar sem aðaláhersla er á endurhæfingu og farsæla öldrun.
Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni en starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við aðrar fagstéttir sem koma að meðferð og endurhæfingu sjúklinga innan og utan spítalans. Einnig er unnið náið með aðstandendum og áhersla lög á farsæla útskrift.
Deildirnar voru nýverið sameinaðar undir einn deildarstjóra, því eru mikil tækifæri til að vinna að umbótaverkefnum sem er spennandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga. Starfið felur í sér fjölbreytta hjúkrun og boðið er upp á ítarlega þjálfun fyrir nýtt starfsfólk.
Starfið er fjölskylduvænt og sveigjanleiki er í boði varðandi vinnutíma.
Landakot er inngildandi vinnustaður, þar sem fjölbreytileiki íslensks samfélags fær að njóta sín og mannvirðing er höfð að leiðarljósi.
Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.