Sérfræðingur í lækningatækjum
Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í málefnum lækningatækja í deild eftirlits og öryggis. Starfið felur í sér eftirlit með lækningatækjum á Íslandi í víðu samhengi. Leitað er að jákvæðum, drífandi, nákvæmum og skilvirkum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum. Um er að ræða 100% starf og er kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Eftirlit með framleiðslu, innflutningi, dreifingu og sölu lækningatækja
- Eftirlit með viðhaldi og notkun lækningatækja
- Upplýsingagjöf og samstarf við hagsmunaaðila
- Samskipti við erlenda aðila er varða lækningatæki
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. hjúkrunarfræði, heilbrigðisverkfræði, náttúruvísindi eða
sambærilegt nám - Þekking eða reynsla á sviði lækningatækja er kostur
- Þekking eða reynsla af eftirliti og gæðamálum er kostur
- Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Nákvæmni, skilvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Góð tölvufærni
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi, hafa eftirlit með lyfjamarkaðnum, lækningatækjum o.fl., meta gæði og öryggi lyfja ásamt því að tryggja faglega upplýsingagjöf í málaflokkum stofnunarinnar. Hjá Lyfjastofnun vinna tæplega 70 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.