Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild í Fossvogi
Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við sækjumst eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í starfsnámi í okkar góða lið. Við sækjumst bæði eftir reynslumiklum sem og nýútskrifuðum. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus frá 1. desember 2024 eða eftir samkomulagi.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.