
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Sjúkraliði við Grunnskólann á Reyðarfirði
Um er að ræða 100% starf frá 1. janúar 2025 sem heyrir bæði undir skólann og frístund. Í skólanum eru rúmlega 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er aðeinstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.
Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is
Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir.
- Vinnur eftir áætlun sem er útbúin vegna sérþarfa nemanda.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs undir stjórn yfirþroskaþjálfa og deildarstjóra sérkennslu.
- Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliðamenntun er skilyrði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
Fríðindi í starfi
- Vinnutímastytting
- Íþrótta- og tómstundarstyrkur
Auglýsing birt29. október 2024
Umsóknarfrestur12. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali

Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Aðstoð á tannlæknastofu
Kjartan Gylfason ehf