

Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Viltu taka þátt í að byggja upp nýja geðdeild og móta framtíð réttar- og öryggisgeðþjónustu?
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum sjúkraliðum sem vilja taka virkan þátt í uppbyggingu nýrrar réttar- og öryggisgeðdeildar á Kleppi. Hér er spennandi tækifæri til að koma að mótun nýrrar deildar frá grunni, hafa áhrif á hjúkrun, umönnun og starfshætti og taka þátt í þróun sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu.
Um deildina
Um er að ræða nýja 8 rúma legudeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda. Á deildinni verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða og batamiðaða nálgun þar sem meðferð og endurhæfing taka mið af þörfum, styrkleikum og getu hvers og eins. Meginmarkmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga til aukins sjálfstæðis, bættra lífsgæða og farsællar endurkomu út í samfélagið.
Starfsemin mun byggja á öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í hjúkrun og daglegu lífi deildarinnar. Sjúkraliðar starfa í nánu samstarfi við hjúkrunarfræðinga og annað fagfólk, eru í daglegum samskiptum við sjúklinga, veita nærhjúkrun, fylgjast með líðan og heilsufari og taka þátt í að skapa öruggt, uppbyggilegt og styðjandi meðferðarumhverfi. Sérstök áhersla verður lögð á virka þátttöku sjúklinga í eigin meðferð, góð samskipti og markvisst samstarf við aðstandendur.
Miklar og heildrænar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala, bæði hvað varðar húsnæði, skipulag og þróun þjónustunnar. Opnun nýrrar deildar er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu. Starfsfólk sem ræðst til starfa fær tækifæri til að taka virkan þátt í að móta faglega sýn, þróa hjúkrunar- og meðferðarumhverfi, innleiða nýja verkferla og byggja upp sterka liðsheild. Áhersla verður lögð á faglega þróun, þekkingarmiðlun og starfsumhverfi sem einkennist af samvinnu, öryggi og metnaði fyrir góðri þjónustu.
Við bjóðum upp á fræðslu, stuðning og tækifæri til faglegrar sérhæfingar:
-
Sérhæfð fræðsla og þjálfun í réttar- og öryggisgeðhjúkrun
-
Skipulögð aðlögun fyrir nýtt starfsfólk - með stuðningi í starfi, fræðslu og öruggri innkomu inn í krefjandi en gefandi starf
-
Þjálfun fyrir opnun deildar, þar sem allt starfsfólk fær tíma og stuðning til að undirbúa sig vel áður en starfsemi hefst
-
Raunveruleg tækifæri til að byggja upp sérþekkingu og þróast í starfi innan geðþjónustu Landspítala
Hvort sem þú ert nýútskrifaður sjúkraliði eða hefur mikla reynslu - hjá okkur færðu umgjörð til að vaxa.
Betra jafnvægi vinnu og einkalífs
Vinnuvika í fullu starfi er 36 stundir, og getur orðið styttri eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfskjör og upplýsingar
-
Starfshlutfall: 70-100% eða eftir samkomulagi
-
Vinnufyrirkomulag: Vaktavinna
-
Störfin eru laus frá: 2. janúar 2027 eða eftir samkomulagi
-
Gert er ráð fyrir að deildin hefji formlega starfsemi í mars 2027
Langar þig að taka þátt í að skapa eitthvað nýtt, þróast í starfi og hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?
Sæktu um og vertu með frá fyrsta degi.
- Almenn og sérhæfð geðhjúkrun í samræmi við hjúkrunaráætlun og meðferð í samstarfi við hjúkrunarfræðinga og aðra fagaðila
- Daglegur stuðningur við sjúklinga í athöfnum daglegs lífs, virkni og endurhæfingu
- Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymi geðsviðs
- Tekur virkan þátt í uppbyggingu og þróun þjónustu á nýrri geðdeild
- Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
- Stuðlar að góðum starfsanda
- Skráning í sjúkraskrá og upplýsingagjöf í samræmi við verklag deildarinnar
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Áhugi á hjúkrun fólks með alvarleg geðræn einkenni
- Reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Geta til að vinna undir álagi í krefjandi aðstæðum
- Mjög góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Íslenska











































