

Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa á vöknun í Fossvogi.
Vöknun er frábær vinnustaður þar sem samvinna, fagmennska og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Nýtt starfsfólk fær einstaklingsmiðaða aðlögun og þjálfun með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Á vöknun starfa um 40 hjúkrunarfræðingar og 6 sjúkraliðar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum.
Vöknun hefur aðsetur á þremur stöðum, E6 í Fossvogi, 12A við Hringbraut og 23A á kvennadeild. Deild E6 þjónar börnum og fullorðnum eftir svæfingar og slævingar við skurðaðgerðir og önnur inngrip. Deildin er opin allan sólarhringinn, flestir sjúklingar koma eftir skipulagðar aðgerðir á dagvinnutíma en deildin tekur einnig á móti sjúklingum eftir bráðaaðgerðir á kvöldin, nóttunni og um helgar. Vöknun heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska


































