

Iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari í hjálpartækjaráðgjöf
Vegna aukinna verkefna leitar Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. að iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í ráðgjöf, sölu og þjónustu á hjálpartækjum.
Starfið sameinar einstaklingsmiðaða ráðgjöf, sölu og þjónustu, þar sem viðkomandi nýtir fagþekkingu sína við að aðstoða viðskiptavini við val á hjálpartækjum sem styðja hreyfanleika, sjálfstæði og daglegt líf fólks.
Viðkomandi kemur inn í samheldið teymi reynslumikils fagfólks á heilbrigðissviði og vinnur með viðskiptavinum, samstarfsfólki og erlendum birgjum.
-
Fagleg ráðgjöf og sala á hjólastólum, vinnustólum, sessum og tengdum búnaði.
-
Leiðbeiningar til viðskiptavina um val og notkun hjálpartækja.
-
Ráðgjöf og sala á þrýstingsfatnaði, vafningum og aðgerðarfatnaði í samstarfi við teymið.
-
Innkaup og samskipti við erlenda birgja.
-
Þátttaka í vörukynningum, vinnustofum og vörusýningum.
-
Útboðsgerð í samvinnu við teymið.
-
Gilt íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari.
-
Áhugi á hjálpartækjum og hæfni til að tengja þarfir fólks við viðeigandi lausnir.
-
Góð samskiptahæfni, nærgætni og skýr framsetning upplýsinga.
-
Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
-
Reynsla af hjálpartækjum, endurhæfingu eða sambærilegri ráðgjöf er kostur.
-
Reynsla af söluráðgjöf er kostur en ekki skilyrði.
Íslenska
Enska










