Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur í hlutastarf um helgar – Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarheimilið Skjól óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til starfa sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni.

Miðað er við 20% starfshlutfall en mikilvægt er að viðkomandi geti tekið helgar- og kvöldvaktir.

Skjól er rótgróið, faglegt og öflugt hjúkrunarheimili með reyndu og góðu starfsfólki þar sem 106 íbúar búa. Skjól var fyrsta hjúkrunarheimilið í Reykjavík sem byggt var frá grunni með hjúkrunarrými eingöngu.

Hjúkrunarfræðingar eru lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru höfð að leiðarljós samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.

Lagt er upp úr góðri þverfaglegri samvinnu innan heimilis og hefur viðkomandi fjölmörg tækifæri til þess að vaxa og dafna í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrun íbúa og vaktstjórn.
  • Skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferðir.
  • Samskipti við íbúa og aðstandendur.
  • Hefur eftirlit með gæðum hjúkrunarþjónustunnar.
  • Tekur virkan þátt í starfsþróun og gæðastarfi.
  • Vinnur við RAI mat, Sögukerfi, Iðunni, Lyfjavaka, Timian, MainManager og eMed.
  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá Embætti landlækni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptafærni.
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi.
  • Jákvætt viðmót.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • 36 stunda vinnuviku.
  • Skjól er fjölmennur vinnustaðar með öflugu starfsmannafélagi, við bjóðum upp á íþróttastyrk og niðurgreiddan hádegismat.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kleppsvegur 64, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar