Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Hjúkrunardeildarstjóri bráðamóttöku HSU - tímabundin staða

Laus er til umsóknar tímabundin staða hjúkrunardeildarstjóra á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Selfossi.

HSU leitar að metnaðarfullum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að leiða fjölbreytt og krefjandi starf hjúkrunardeildarstjóra bráðamóttöku, tímabundið. Á deildinni starfar samhent teymi heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir bráðaþjónustu fyrir íbúa og gesti Suðurlands.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi með faglega, mannauðs- og rekstrarlega ábyrgð. Starfið er 100% og veitist frá 15.janúar 2027 til eins árs, eða samkvæmt nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdarstjóri hjúkrunar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita faglega forystu í hjúkrun og þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar

Hafa yfirsýn yfir og leiða þróun, skipulag og gæðamál bráðamóttökunnar

Skipuleggja starfsemi deildarinnar í samstarfi við aðra stjórnendur deildarinnar

Stýra og skipuleggja störf hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra starfsmanna deildarinnar

Bera rekstrarlega ábyrgð á starfsemi

Tryggja öryggis-, gæða- og umbótastarf

Taka þátt í klínísku starfi og teymisvinnu eftir þörfum

Framfylgja stefnu, markmiðum og áherslum HSU

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi

Stjórnunarmenntun og/eða reynsla af stjórnun æskileg

Farsæl reynsla af stjórnun og leiðtogahlutverki æskileg

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

Brennandi áhugi á þróun og eflingu þjónustu

Frumkvæði, metnaður og hæfni til að leiða breytingar og umbætur

Góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku

Sjálfstæði í starfi, áreiðanleiki, drifkraftur og árangursmiðað viðhorf

Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar