Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu

Hefur þig alltaf dreymt um að sérhæfa þig í starfi og finna að störf þín skipti verulegu máli?

Krabbameinsþjónusta Landspítala leitar að hjúkrunarfræðingum í spennandi og fjölbreytt störf.

Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni, öflug teymi og einstaklingsmiðaða aðlögun þar sem þú færð stuðning reyndra hjúkrunarfræðinga. Hvort sem þú ert nýútskrifuð/-aður eða með reynslu þá gefst þér tækifæri til að vaxa í starfi og taka þátt í þróun framtíðarþjónustu fyrir sívaxandi hóp sjúklinga.

Af hverju að velja krabbameinsþjónustuna?

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í sérhæfðu umhverfi

  • Markviss aðlögun og handleiðsla við upphaf starfs

  • Regluleg fræðsla og tækifæri til starfsþróunar

  • Öflug teymisvinna með fjölbreyttum fagstéttum

  • Mikil samheldni og öflugt félagslíf

  • Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum

  • 36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu

Um starfið

Um er að ræða dagvinnustarf í 80-100% starfshlutfalli með breytilegum vinnutíma við hjúkrun og þjónustu sjúklinga í krabbameinsmeðferð. Einnig er möguleiki á blönduðu starfi eftirtöldum deildum innan krabbameinsþjónustunnar:

  • Dag- og göngudeild 11BC

  • Geislameðferðardeild 10K

  • Legudeild blóð- og krabbameinslækninga 11EG (vaktavinna)

Fram undan er mikil uppbygging og þróun þjónustunnar. Á næstu árum mun þörf fyrir krabbameinsþjónustu aukast og hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í að móta nýjar lausnir og bæta þjónustu við þennan mikilvæga sjúklingahóp.

Við bjóðum

Starf í krabbameinsþjónustunni með öflugum og samhentum hópi starfsfólks sem styður hvert annað og leggur metnað sinn í fagmennsku, umhyggju og góðan starfsanda

Tækifæri til að þróa sérþekkingu, taka þátt í nýsköpun og verða hluti af vinnustað þar sem rödd starfsfólks skiptir máli.

Upphaf starf er 1. nóvember 2026 eða skv. samkomulagi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Þórunni, deildarstjóra eða Halldóru, forstöðuhjúkrunarfræðing krabbameinsþjónustu.

Við búum yfir öflugum og skemmtilegum hópi starfsfólks. Öflugt félagslíf er innan krabbameinsþjónustunnar og leggjum við mikla áherslu á samheldni og góðan starfsanda.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrun sjúklinga í geislameðferð og krabbameinslyfjameðferð
  • Mat á líðan og einkennum, einkennameðferð, eftirlit og eftirfylgd
  • Greina hjúkrunarþarfir, veita hjúkrunarmeðferð og bera ábyrgð á meðferð skv. starfslýsingu
  • Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur spítalans
  • Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
  • Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Þátttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á sérhæfðri hjúkrun og faglegri þróun
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
  • Hæfni og áhugi til að vinna í teymi
  • Íslensku- og enskukunnátta áskilin
Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur14. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (26)
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali