Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut

Gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut leitar eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem eru sjálfstæðir í starfi, með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki og tækifæri til að efla faglega þekkingu í meðferð hágæslu- og gjörgæslusjúklinga. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun í starfi undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.

Á deildinni er öflugt fræðslustarf og halda gjörgæsluhjúkrunarfræðingar og sérfræðingar í gjörgæsluhjúkrun utan um skipulag, leiðsögn og fræðslu. Starfsandinn er framúrskarandi og áhersla lögð á stuðningsríkt starfsumhverfi. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga með markvissri handleiðslu og fræðslu samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga.

Við óskum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og lifandi dagvinnustarf á göngudeild augnsjúkdóma. Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma á Íslandi og samanstendur af göngudeild, dagdeild og sérhæfðum skurðstofum.

Hvað býðst þér?

Fjölbreytt og tæknilegt starf þar sem þú:

  • Starfar í margvíslegum verkefnum frá móttöku til skurðstofu

  • Færð einstaklingsmiðaða starfsþjálfun og skipulagða fræðslu

  • Getur fengið stuðning við frekari starfsþjálfun með námsheimsókn eða sérnámi í augnhjúkrun erlendis

  • Starfar í sérhæfðu umhverfi, í þverfaglegu samstarfi þar sem ríkir góður starfsandi

Vinnuskilyrði:

  • Dagvinna, allt að 100% starfshlutfall (60-100%)

  • 36 stundu vinnuvika í fullri dagvinnu

  • Vinnuumhverfi sem stuðlar að jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa tæplega 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar börnum og fullorðnum sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn og sérhæfð gjörgæslumeðferð, meðal annars eftir hjartastopp og opnar hjartaaðgerðir, auk meðferðar með hjarta- og lungnavél. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Vinnutímaskipulag er vaktavinna og unnið er á þrískiptum vöktum.

Gjörgæsludeildirnar við Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til samvinnu og stendur til að sameina deildirnar tvær við flutning í nýjan meðferðakjarna. Samstarf deildanna getur falið í sér að hjúkrunarfræðingar aðstoði gjörgæsluna á hinni starfsstöðinni þegar þörf krefur.

Störfin eru laus frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100% vaktavinna skv. vaktaskipulagi deildar. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur verið styttri eftir samsetningu vakta, sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Virk þátttaka í þróun hjúkrunar og uppbyggingu deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Sérnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
  • Frumkvæði, faglegur metnaður
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta áskilin
Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur9. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (26)
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali