Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Fossvogi

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Við leitum eftir gjörgæsluhjúkrunarfræðingum og hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á hágæslu- og gjörgæsluhjúkrun. Í boði eru áhugaverð og fjölbreytt störf með góðu samstarfsfólki og gott tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa með sér faglega þekkingu í meðferð hágæslu- og gjörgæslusjúklinga.

Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingum er boðið upp á þjálfun s.s. sérhæfð endurlífgunarnámskeið og Basic for Nurses námskeið, hér er því kjörið tækifæri til þróunar á þekkingu. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga. Við bjóðum nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga velkomna til starfa á deildina.

Unnið er í vaktavinnu skv. vaktaskipulagi deildar. Starfshlutfall er 80-100% og eru störfin laus frá 1. nóvember n.k. eða eftir samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og starfa rúmlega 70 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma.

Gjörgæsludeildirnar við Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til samvinnu og stendur til að sameina deildirnar tvær við flutning í nýjan meðferðakjarna. Samvinna sem þessi getur falið í sér að hjúkrunarfræðingar í Fossvogi aðstoði gjörgæsluna við Hringbraut þegar þannig stendur á og öfugt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Virk þátttaka í þróun hjúkrunar og uppbyggingu deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Sérnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
  • Frumkvæði, faglegur metnaður
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (31)
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í gigtarlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali