Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á legudeild geðrofssjúkdóma

Langar þig að vera hluti af öflugu teymi þar sem við vinnum saman að því að veita góða geðhjúkrun, þróa þjónustuna og hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?

Á legudeild geðrofssjúkdóma gefst þér tækifæri til að sinna fjölbreyttri og krefjandi geðhjúkrun þar sem klínísk dómgreind, samskiptafærni og sjálfstæði í starfi fá að njóta sín.

Við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á geðhjúkrun og vill taka þátt í að veita einstaklingum með geðrofssjúkdóma örugga, einstaklingsmiðaða og batamiðaða þjónustu. Starfið hentar jafnt nýútskrifuðum sem reyndum hjúkrunarfræðingum sem vilja efla þekkingu sína og vaxa í starfi.

Legudeild geðrofssjúkdóma er 16 rúma sérhæfð legudeild sem sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Á deildinni starfar öflugt þverfaglegt teymi þar sem rík áhersla er lögð á samstarf, faglega þróun og góðan starfsanda.

Við leggjum metnað í að styðja hjúkrunarfræðinga í starfi. Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar eiga kost á sérhæfðu starfsþróunarári með markvissri handleiðslu og fræðslu. Reynslumiklir hjúkrunarfræðingar fá jafnframt tækifæri til að þróa klíníska sérþekkingu, taka þátt í umbótastarfi og hafa áhrif á áframhaldandi þróun geðhjúkrunar.

Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 15. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum.

Vinnuvika starfsfólks í fullu starfi er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Áhugi á geðhjúkrun og batamiðaðri þjónustu
Reynsla af geðhjúkrun er kostur
Framhaldsnám í geðhjúkrun er kostur
Áhugi á fjölskyldumiðaðri nálgun og samstarfi við aðstandendur
Faglegur metnaður og áhugi á umbótum og þróun hjúkrunar
Góð samskiptafærni og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og skipuleggja hjúkrun á vakt með yfirsýn yfir hjúkrunarþarfir og öryggi sjúklinga
Veita einstaklingsmiðaða hjúkrun og styðja við bataferli
Byggja upp meðferðarsamband og veita sjúklingum og aðstandendum stuðning og fræðslu
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Þjálfun og stuðningur við nema og annað starfsfólk
Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga A4 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga A4 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali
Landspítali
Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Landspítali
Landspítali
Almennur læknir - Hefur þú áhuga á skurðlækningum?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild
Landspítali
Landspítali
Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali
Landspítali
Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar
Landspítali