

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á gjörgæslu í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptafærni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun sem stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans.
Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% og unnið að mestu í dagvinnu. Starfið er laust frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-,skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa tæplega 100 starfsmenn; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar og hágæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins.
Fram undan eru spennandi tímar vegna flutnings í nýjan meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut, þar sem opna mun ný sameinuð gjörgæsludeild. Sameining deildanna felur í sér mikilvæg tækifæri til að efla samvinnu gjörgæsludeilda, samræma verklag og nýta þekkingu og reynslu starfsfólks þvert á einingar. Mikil áhersla er lögð á öfluga liðsheild, opið samtal og þátttöku starfsfólks í mótun framtíðarskipulags gjörgæsluþjónustu, með það að markmiði að tryggja áfram framúrskarandi, örugga og sjúklingamiðaða þjónustu.
- Vinnur með deildarstjóra að skipulagningu starfseminnar og mótun liðsheildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
- Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu í samráði við deildarstjóra
- Stuðlar að uppbyggingu jákvæðrar menningar og sálræns öryggis starfsfólks
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Viðbótarnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
- Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
- Lausnamiðuð hugsun, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
- Áhugi á umbóta- og gæðastarfi
- Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
Íslenska












































