Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Hjúkrunarfræðingur - Hrafnista Nesvellir

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða? Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem stuðlað er að þróun starfsfólks? Þá viljum við endilega heyra frá þér.


Hrafnista Nesvellir óskar eftir að ráða til sín hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni. Starfshlutfall er samkomulagsatriði en mikilvægt er að viðkomandi geti tekið helgar- og kvöldvaktir í bland við dagvaktir.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Allar nánari upplýsingar veitir Þuríður Ingibjörg Elísdóttir, forstöðumaður ([email protected])

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni
Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar