Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Starfsmaður í þvottahúsi

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða til sín starfsmann í sérhæfð verkefni tengd þvotti, sértæk þrif og önnur heimilisverk.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði en viðveru er á dagvinnutíma.

Góð íslenskukunnátta og/eða framúrskarandi enskukunnátta skilyrði.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.


Starfinu getur fylgt burður á vörum og því mikilvægt að viðkomandi treysti sér í það.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Merking, móttaka og dreifing á líni á deildum
  • Þvottur á tuskum, viskastykkjum og þ.h.
  • Umsjón með djúphreinsun og þrifum á stólum í sal, hægindastólum á deildum
  • Pöntun á ræstivörum
  • Eftirlit með viðhaldsþörf á herbergjum áður en nýr íbúi flytur inn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla á sambærilegu starfi kostur
  • Íslenskukunnátta og/eða framúrskarandi enskukunnátta skilyrði
  • Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í samskiptum skilyrði
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar