Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri á Eir, blundar í þér stjórnandi?

Eir óskar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og hressum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í fullt starf.Þriðja hæð heimilisins er blönduð deild með 39 íbúum og þremur hvíldarrýmum. Við leggjum áherslu á heimilislegan brag, jákvæðni, samvinnu og samveru. Mikil áhersla er lögð á að starfsfólk fái þjálfun við að mæta sérþörfum heimilismanna.

Mikilvægt er að viðkomandi geti tekið þátt í teymisvinnu, setið fjölskyldufundi og verið í samskiptum við ættingja.Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra.
  • Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
  • Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi.
  • Almenn störf hjúkrunarfræðings/vaktstjóra.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Stjórnunarreynsla er kostur.
  • Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur.
  • Góð íslenskukunnáttu er skilyrði


Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja náms- og starfsferilsskrá. Öllum umsóknum verður svarað.


Laun greidd samkvæmt gildandi stofnanasamningi Fíh og SFV.

Nánari upplýsingar veitir:

Þórdís Hulda Tómasdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunarsviðs á netfanginu [email protected] eða Ólína Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á netfanginu [email protected]

Hlökkum til að heyra frá þér!


Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur26. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar