

Hjúkrunarfræðingur á húsvakt - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi á húsvakt Sóltúns Sólvangi í Hafnarfirði.
Húsvakt Sóltúns Sólvangi er ný nálgun í vinnuskipulagi á Sólvangi.
Hjúkrunarfræðingur á húsvakt er faglegur leiðtogi hjúkrunarþjónustu í húsinu utan dagvinnutíma og hluti af húsvaktarteymi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og sniðið fyrir hjúkrunarfræðinga með leiðtogafærni og sem eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt.
Um framtíðarstarf er að ræða og gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Fjölbreytt verkefni í boði í góðu starfsumhverfi og hentugri stærð starfseininga. Framundan er spennandi uppbygging sem býður uppá frekari tækifæri.
Á Sóltúni Sólvangi eru hjúkrunarfræðingar lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing og velsæld eru leiðarljós í leik og starfi.
Staðsetning: Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Helstu verkefni
- Er klínískur leiðtogi á húsvakt
- Veitir íbúum örugga, faglega og persónumiðaða hjúkrun í samræmi við þarfir hvers og eins
- Metur bráð veikindi og breytingar á ástandi íbúa og grípur til viðeigandi aðgerða
- Samskipti og samvinna við lækna heimilis þegar þörf er á
- Tryggir rétta lyfjameðferð og ber ábyrgð á lyfjatengdum verkefnum
- Forgangsraðar verkefnum í húsinu
- Veitir starfsfólki stuðning, ráðgjöf og handleiðslu í klínískum viðfangsefnum
- Tekur þátt í gæðastarfi og umbótaverkefnum
- Stuðlar að öflugri teymisvinnu og jákvæðu starfsumhverfi
Helsta ábyrgð í starfi
- Ber ábyrgð á faglegri hjúkrunarþjónustu, klínísku mati og ákvörðunartöku á vakt
- Forgangsraðar verkefnum og stuðlar að öryggi íbúa og gæði þjónustunnar
- Ber ábyrgð á að þjónustan sé veitt í samræmi við gæðahandbók, verklagsreglur Sóltúns og siðareglur hjúkrunar
- Metur hvenær leita þarf til vakthafandi læknis og ber ábyrgð á viðeigandi atvikaskráningu
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð íslenskukunnátta (C1)
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og faglegur metnaður
- Hreint sakavottorð skilyrði
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Starfskjör og fyrirkomulag
- Starfshlutfall samkvæmt samkomulagi
- Laun eru greidd samkvæmt viðeigandi kjarasamningi
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
Um Sóltún heilbrigðisþjónustu
Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.
Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.
Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsti styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.
Nánari upplýsingar veitir:
Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður Sóltúni Sólvangi, [email protected]
Hlökkum til að heyra frá þér.
Íslenska

















