
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Stefna Sóltúns er að bjóða heilbrigðisþjónustu í fremstu röð.
Markmið okkar er að skapa hlýlegt og nærandi samfélag þar sem þjónustuþegar og starfsfólk upplifir öryggi og vellíðan.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi umönnun, persónulega og faglega þjónustu, fjölbreyttar lausnir, jákvæða forystu, gróskuhugarfar og framþróun.
Sóltún heilbrigðisþjónusta rekur fjölbreytta heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða:
Sóltún Reykjavík – hjúkrunarheimili, er staðsett í Sóltúni 2, 105 Reykjavík
Sóltún Sólvangi - hjúkrunarheimili, er staðsett á Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Sóltún Heilsusetur – endurhæfing, er staðsett á Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún Heima – heimaþjónusta, hefur aðsetur á Sólvangi í Hafnarfirði
Dagdvöl og dagþjálfun Sóltúns er staðsett á Sólvangi í Hafnarfirði
Skrifstofur Sóltúns eru staðsettar í Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi.

Aðstoðarmaður í sjúkra- og iðjuþjálfun - Sóltúni heilbrigðisþjónustu, Sóltúni í Reykjavík
Við í Sóltúni Reykjavík leitum að metnaðarfullum og jákvæðum aðstoðarmanni sjúkraþjálfara til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi í fjölbreytt og gefandi starf. Við bjóðum upp á faglegt starfsumhverfi, öflugt teymi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði og vellíðan í hlýlegu umhverfi þar sem vellíðan og virðing eru í fyrirrúmi.
Um er að ræða 50% stöðu, með möguleika á auknu starfshlutfalli.
Skilyrði er að viðkomandi sé með góða íslensku kunnáttu (C1/C2), sé orðinn 18 ára og með hreint sakavottorð.
Helstu verkefni
- Aðstoða sjúkraþjálfara við meðferð og þjálfun íbúa
- Önnur tilheyrandi verkefni tengd líkamsþjálfun, eins og stólaleikfimi, gönguhópar og jafnvægishópar
- Hafa eftirlit með íbúum á þjálfunarsvæði
- Hafa eftirlit með búnaði og húsnæði
- Umhirða og tiltekt í starfsrými sjúkraþjálfunar
- Sinna léttum þrifum á tækjum
- Taka þátt í öðrum störfum og aðstoða í verkefnum innan sjúkra- og iðjuþjálfunar eftir þörfum
- Geta unnið í teymi og með skjólstæðinga með fjölbreytt heilsufarsástand, bæði líkamlegt og hugrænt
Menntunar og hæfniskröfur
- Menntun er tengist starfinu - td. sjúkraþjálfunarnemi, íþróttafræðinemi, einkaþjálfari eða fyrri reynsla af störfum sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara (eða reynsla tengd leikfimis- og/eða líkamsþjálfun aldraðra/fatlaðra)
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og sveigjanleiki
- Reynsla af umönnunarstarfi eða öðru starfi með öldruðum er kostur en ekki skilyrði
Starfskjör og fyrirkomulag
- Launakjör skv. viðeigandi kjarasamningi og SFV
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
- Hlýlegt og faglegt starfsumhverfi
- Þverfaglegt samstarf og öflugt teymi
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sóltúni 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Aðstoðardeildarstjóri – Sóltún Sólvangi hjúkrunarheimili
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Sjúkraþjálfari / íþróttafræðingur - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun óskast til starfa hjá Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfingu
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Starfsmaður í starf með fötluðu fólki
Skáli búsetuþjónusta og skammtímadvöl

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Kópavogsbær

Háskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum í fjölbreytt og skemmtilegt starf! ✨
NPA miðstöðin

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Stuðningsfulltrúi- Íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarmaður tannlæknis/tanntæknir
Tanntorg

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Starfsfólk í skammtímavist og stuðningsþjónustu
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær