Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir starfsfólki í umönnun

Sóltún hjúkrunarheimili, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að starfsfólki með hjartað á réttum stað í störf við umönnun.

Langar þig að vinna í góðum félagsskap og í gefandi starfsumhverfi þar sem þú tekur ríkan þátt í daglegu lífi aldraðra? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.

Við leitum að duglegum, jákvæðum og stundvísum einstaklingum til starfa við umönnun aldraðra.

Umsækjendur þurfa að hafa ríka samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir íbúa
  • Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni íbúa
  • Samvinna við samstarfsfólk í þverfaglegu teymi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Jákvætt viðhorf, ábyrgð og góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta (C1/C2)
  • 18 ára aldur eða eldri
  • Hreint sakavottorð er skilyrði

Starfskjör og fyrirkomulag:

  • Um vaktafyrirkomulag er að ræða
  • Starfshlutfall er samkomulag
  • Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur

Sóltún hefur á að skipa öflugum hópi starfsmanna með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Auglýsing birt2. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar