

Háskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum í fjölbreytt og skemmtilegt starf! ✨
Viltu vera hjálparhönd í daglegu lífi -
Ég er á 18. ári að hefja háskólanám í haust og er að leita að nýjum NPA aðstoðarkonum til að bæta í teymið mitt. Ég nota hjólastól og er aðstoðin bæði heima og í skólanum og við það sem ég er að gera hverju sinni. Um mjög fjölbreytilegt starf er að ræða. Tilgangurinn með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) er að ég geti lifað eðlilegu lífi en NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf óháð fötlun.
• Aldur: 19-26 ára
• Starfshlutfall: Mögulegt starfshlutfalli er frá 30-60%
• Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst 2026
• Leitað er að aðstoðarkonum sem geta skuldbundið sig á 1- 4 dagvaktir á virkum dögum og um helgar
- Um er að ræða bæði hefðbundnar vaktir og bakvaktir
- Möguleiki á aukavöktum á kvöldin
• Um vaktavinnu er að ræða og laun eru greidd skv. kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar
• Viðkomandi þarf að vera með bílpróf og hafa afnot af bíl
• Mikilvægt er að viðkomandi geti tileinkað sér sveigjanleika í starfi, sé ábyrgur og stundvís
Meðmæli skulu fylgja umsókn
Athugið að farið er yfir umsóknir um leið og þær berast þannig endilega sækið um sem fyrst. Ef þið hafið spurningar má senda þær á netfangið [email protected]
Íslenska




















