Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Sérfræðingur í heilbrigðistækni

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi til að ganga til liðs við teymi okkar. Starfið felur í sér innleiðingu, þróun og ráðgjöf á sviði heilbrigðistækni, þar sem nýsköpun og tæknilausnir styðja við öruggari og skilvirkari þjónustu við notendur. Jafnframt felur starfið í sér ráðgjöf og sölu á sjúkrarúmum og tengdum hjálpartækjum fyrir heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og aðra viðskiptavini.

Um er að ræða framtíðarstarf í öflugu fagteymi á traustum og metnaðarfullum vinnustað. Mikil áhersla er lögð á faglega þjónustu og ráðgjöf. Tækifæri eru til að auka þekkingu innan velferðartækni og vinna með skemmtilegu fólki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Innleiðing og eftirfylgni með verkefnum á sviði fjarheilbrigðisþjónustu
  • Samskipti, kynningar og ráðgjöf um notkun heilbrigðistæknilausna
  • Ráðgjöf og sala á sjúkrarúmum, dýnum og öðrum búnaði
  • Þátttaka í gerð tilboða og útboða
  • Samskipti við innlenda og erlenda framleiðendur og birgja
  • Þátttaka í þróun nýrra lausna og þjónustu á sviði heilbrigðistækni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. hjúkrunarfræði eða sambærilegu heilbrigðistengdu námi
  • Framúrskarandi tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja hluti á því sviði
  • Reynsla af verkefnastjórnun með tæknilausnir er mikill kostur
  • Reynsla af sölu- og ráðgjafastörfum er mikill kostur
  • Þekking á Business Central og CRM kerfum er mikill kostur
  • Áhugi á heilbrigðistækni og vilji til að afla sér sérþekkingar á sviðinu
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Drifkraftur ásamt áhuga, vilja og elju til að ná árangri í starfi
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar, hæfni sinni og getu til að mæta kröfum starfsins.

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu á sviði öryggis-, velferðar- og bílastæðalausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.

Nánari upplýsingar veitir Aníta Jóhannesardóttir, deildarstjóri Velferðarlausna, í síma 570 2400 eða netfang: [email protected].

Auglýsing birt6. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar