

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa hjá Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfingu
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
- Almenn hjúkrunarstörf
- Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Þátttaka í þróunarverkefnum
- Menntun og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
- Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
- Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Umsækjendur þurfa að lágmarki að hafa grunn kunnáttu í íslenskri tungu
Íslenska
Enska










