

Iðjuþjálfi eða tómstundafræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfingu
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða iðjuþjálfa eða tómstundafræðing til starfa. Starfið felur með sér að móta og leiða áherslur tengt iðju- og félagsstarfi í nýrri rekstrareiningu Heilsuverndar. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
- Tekur þátt í umönnun og þjálfun skjólstæðinga
- Skipuleggur og tekur þátt í iðju skjólstæðinga í samvinnu við starfsfólk
- Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlun fyrir notendur
- Stuðlar að og viðheldur sjálfræði og sjálfstæði notenda og eflir þá til sjálfshjálpar
- Veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks
- Mótar og leiðir tómstundastarf fyrir skjólstæðinga
- Eykur virkni skjólstæðinga dags daglega, bæði tengt hreyfingu og félagslegri nærveru
- Eflir samheldni með því að skapa skjólstæðingum vettvang til samveru
- Háskólapróf í iðjuþjálfun og starfsleyfi eða menntun sem tómstundafræðingur
- Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Enska
Íslenska




