

Forritari / Sérfræðingur í hússtjórnarkerfum
Forritari / sérfræðingur í hússtjórnarkerfum
Öryggismiðstöðin leitar að öflugum sérfræðingi til að taka þátt í þróun og innleiðingu snjallra lausna á sviði hússtjórnarkerfa og IoT.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem tengjast hönnun, forritun og samþættingu kerfa fyrir rekstur og vöktun fasteigna. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á tækni, sjálfvirknivæðingu, gagnavinnslu og þróun nýrra lausna.
Helstu verkefni
- Hönnun, forritun og uppsetning hússtjórnarkerfa
- Hönnun og uppbygging gagnagrunna og gagnalíkana
- Þróun mælaborða
- Þróun og viðhald API-tenginga og samþætting við önnur kerfi
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Þátttaka í þróun nýrra lausna innan tæknisviðs
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum tækniverkefnum og nýtur þess að takast á við nýjar áskoranir.
- BSc-próf í rafmagnstæknifræði, Rafmagnsiðnfræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun.
- Reynsla af hússtjórnarkerfum eða iðnaðarkerfum er kostur
- Reynsla af SCADA-kerfum og rauntímavöktun er kostur
- Góð þekking á forritun
- Þekking á API-hönnun og samþættingum kerfa er kostur
- Reynsla af IoT-lausnum og samskiptastöðlum á borð við MQTT, Modbus og BACnet er kostur
- Þekking á Docker, Git og nútímalegum þróunarumhverfum er kostur
- Greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð samskiptafærni og hæfni til teymisvinnu
- Góð færni í íslensku og ensku
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni á sviði hússtjórnarkerfa og IoT
- Tækifæri til að leiða verkefni á sviði tækni og hönnunar
- Tækifæri til að betrumbæta ferla
- Tækifæri til að vinna með öflugu teymi sérfræðinga
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi
- Frábær hádegismatur
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu á sviði öryggis-, velferðar- og bílastæðalausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafsson, tækni- og verkefnastjóri: [email protected].
Enska
Íslenska









