ODT
ODT

Junior forritari - lausnahönnuður í Liquid og sjálfvirkni reikningsskila

ODT leitar að áhugasömum og metnaðarfullum forritara eða nýútskrifuðum tölvunarfræðingi til að taka þátt í að þróa og viðhalda stafrænum lausnum fyrir endurskoðun, bókhald og reikningsskil.

Starfið hentar sérstaklega vel einstaklingi sem hefur góðan grunn í forritun, er nákvæmur í vinnubrögðum og hefur áhuga á að vinna við hagnýt verkefni þar sem kóði, gögn og fjármál mætast. Fyrri reynsla af Liquid eða reikningsskilum er kostur en ekki skilyrði.

ODT býður uppá fjölbreytt verkefni í ólíkum atvinnugeirum, reynslumikið samstarfsfólk og faglega þjálfun. Við styðjum starfsfólk okkar til aukinnar þekkingar og hæfni í starfi. Við bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma og tækifæri til heimavinnu í fjölskylduvænu fyrirtæki.

Viðskiptamannahópur okkar er fjölbreyttur og samanstendur af jafnt innlendum sem erlendum fyrirtækjum í ólíkum atvinnugreinum. Við viljum vera í fremstu röð í hagnýtingu á upplýsingatækni í bókhaldi og uppgjörsvinnu og veita framúrskarandi þjónustu.

Umsóknir eru sendar í gegnum Alfreð en má einnig senda á netfangið [email protected]. Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 531 1101. Við hvetjum áhugasama um að sækja um sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu munt þú vinna í Liquid Templating Language við að þróa sniðmát, skýrslur og sjálfvirkni sem styður við vinnu endurskoðenda og bókara. Verkefnin snúast meðal annars um að gera reikningsskil, afstemmingar, gátlista og innri ferla skilvirkari, staðlaðri og öruggari. 

Þú munt vinna náið með sérfræðingum hjá ODT sem leggja til faglega þekkingu á reikningsskilum og ferlum. Þitt hlutverk verður að breyta þeirri þekkingu í skýran, prófanlegan og viðhaldsvænan kóða. 

  • Þróun og viðhald Liquid-sniðmáta fyrir reikningsskil, afstemmingar, skýrslur og vinnuferla. 
  • Aðstoð við að sjálfvirknivæða endurtekin verkefni í bókhaldi, endurskoðun og skýrslugerð. 
  • Uppsetning gagna, útreikninga, skilyrða, taflna og texta í template-umhverfi. 
  • Prófanir, villuleit og skjölun á lausnum. 
  • Samvinna við endurskoðendur og bókara um að skilja þarfir notenda og útfæra þær í kerfinu. 
  • Þátttaka í uppbyggingu kóðavenja, útgáfustýringa og gæðaferla.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnþekkingu á forritun, til dæmis úr námi, verkefnum, starfi eða eigin verkefnum. 
  •  Nákvæmni, þolinmæði og góða rökhugsun.  
  • Hæfni til að læra á ný verkfæri og vinna skipulega með skjölun og prófanir.  
  • Góð tök á ensku, þar sem skjölun og þróunarumhverfi eru að miklu leyti á ensku.  
  • Góð íslenskukunnátta er mikill kostur, þar sem lausnirnar tengjast íslenskum reikningsskilum og skýrslugerð.  

Kostir en ekki skilyrði:

  • Menntun eða nám í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, kerfisfræði eða skyldu sviði.   
  • Reynsla af Liquid og HTML. 
  • Reynsla af Git, VS Code eða sambærilegum þróunarverkfærum.  
  • Reynsla af og/eða áhugi á fjármálum, bókhaldi, endurskoðun, gagnavinnslu eða sjálfvirknivæðingu.  
  • Reynsla af Excel, Power Query, Power BI eða öðrum gagnatólum.  
Auglýsing birt6. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 1e, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BakendaforritunPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vefforritun
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar