Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Hjúkrunarfræðingur - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi

Fjölbreytt verkefni í boði í góðu starfsumhverfi og hentugri stærð starfseininga. Framundan er spennandi uppbygging sem býður uppá frekari tækifæri.

Staðan er laus í lok sumars. Íslenskukunnátta er skilyrði. Um framtíðarstarf er að ræða.

Í Sóltúni eru hjúkrunarfræðingar lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing og velsæld eru leiðarljós í leik og starfi.

Staðsetning: Sóltúni 2, 105 Reykjavík

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á skipulagi, vöktum og daglegri stýringu verkefna
  • Hjúkrun íbúa
  • Samstarf við samstarfsfólk og annað fagfólk
  • Eftirfylgni með gæðum þjónustu og velferð íbúa
  • Önnur verkefni eftir aðstæðum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og faglegur metnaður
  • Jákvætt viðmót
  • Hreint sakavottorð skilyrði


Starfskjör og fyrirkomulag

  • Fjölbreytt og krefjandi starf
  • Tækifæri til að þróast í starfi og taka þátt í uppbyggingu þjónustu
  • Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag samkvæmt samkomulagi
  • Laun eru greidd samkvæmt viðeigandi kjarasamningi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur


Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.


Nánari upplýsingar veitir:

Hildur Björk Sigurðardóttir, forstöðumaður Sóltúni, [email protected]

Hlökkum til að heyra frá þér.

Auglýsing birt7. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar