

Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Ný, sameinuð og stór legudeild leitar að hjúkrunarfræðingi til liðs við öflugt teymi í bæklunarskurðlækningum. Deildin er 35 rúma legudeild sem tilheyrir dag- og legudeildir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Bæklunarskurðdeild er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum sem tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi, s.s. eftir gerviliðaaðgerðir og hryggspengingar.
Við leitum að einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna í teymi sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í bæklunarhjúkrun. Við bjóðum jafnt velkominn reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem og nýútskrifaðan, því við teljum að breidd í þekkingu og reynslu sé mikilvæg.
Í boði er:
-
Fjölbreytt og krefjandi starf á nýrri deild
-
Öflugt og samheldið teymi samstarfsfólks
-
Tækifæri til að hafa áhrif á mótun deildarinnar
-
Sveigjanleiki í vöktum eftir samkomulagi
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Fylgjast með nýjungum innan hjúkrunar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymum
- Íslenskukunnátta
Íslenska


















































