

Vaktasmiður skurðlækninga-, skurðstofu og gjörgæsluþjónustu
Starf vaktasmiðs á sviði skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Um er að ræða dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Við sækjumst eftir öflugum einstaklingi sem er lausnamiðaður, fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Viðkomandi þarf að vera töluglöggur og skipulagður og hafa ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og sýna frumkvæði, nákvæmni og aga í vinnubrögðum.
Vaktasmiður heyrir undir framkvæmdastjóra sviðs skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og þar starfa um 1200 einstaklingar. Megin verkefni vaktasmiðs er gerð vaktaskýrslna fyrir deildir sviðsins og að tryggja rétta vaktaskýrslugerð. Unnið er í Orra fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins og Vinnustund sem og excel og MyTimePlan.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Í boði er stytting vinnuvikunnar, góð vinnuaðstaða, verkefnamiðað vinnurými og gott mötuneyti.
Íslenska
























































