

Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar
Viltu starfa í öflugu teymi á sérhæfðri göngudeild?
Göngudeild hjartabilunar á Landspítalanum við Hringbraut leitar að reyndum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi.
Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að efla faglega þekkingu á sérhæfðu sviði og leggja mikilvægt framlag til heilbrigðisþjónustu við fjölskyldur og einstaklinga.
Starfið er laust 1. september 2026 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 80-100% (umsemjanlegt).
Af hverju að velja okkur?
Fagleg tækifæri
-
Einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga
-
Sjálfstæð vinnubrögð í krefjandi og fjölbreyttu starfi
-
Tækifæri til að þróa sérhæfða þekkingu í hjúkrun hjartasjúklinga
Frábær vinnustaður
-
36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu
-
Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs
-
Náið samstarf fagaðila í þverfaglegu teymi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Jákvæðni og góða samskiptahæfni
- Reynsla af hjúkrun hjartasjúklinga og/ eða langveikra æskileg
- Áhuga á hjúkrun hjartasjúklinga
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Faglegur metnaður og áhugi á þróunarstarfi
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska
Enska




























































