

Hjúkrunarfræðingur - Dagvinna á Laugarásnum meðferðargeðdeild
Skemmtilegt og lærdómsríkt starf - frábært samstarfsfólk - góður starfsandi - tækifæri til að þróa hæfni í geðhjúkrun, málastjórn, teymisvinnu og samskiptum.
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á Laugarásnum, meðferðargeðdeild innan geðþjónustu Landspítala. Laugarásinn er sérhæfð legu- og dagdeild fyrir ungt fólk á aldrinum 18-35 ára með geðrofssjúkdóma á byrjunarstigi. Þar fer fram fjölbreytt starf í snemmíhlutun þar sem hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki. Í starfinu felst bæði málastjórn sem og ábyrgð á sérhæfðum verkefnum hjúkrunar.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 einstaklingar og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Lögð er sérstök áhersla á starfsþróun, m.a. fær starfsfólk þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar. Mikið er lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku hjúkrunarfræðinga og annarra fagstétta þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna.
Nýliðar í hjúkrun sem og reynslumeiri hjúkrunarfræðingar eru hvattir til þess að sækja um. Hjúkrunarfræðingar í geðþjónustu Landspítala hafa tækifæri til þess að hljóta sérhæfða fagþjálfun hjá sérfræðingi í geðhjúkrun sem hefur reynst vel fyrir starfsþróun og framgang í starfi.
Starfshlutfall er 80-100% og er um dagvinnu að ræða, ásamt því að bakvaktir tilheyra starfinu eftir sex mánaða reynslutíma. Starfið er laust frá 17. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Íslenska




























































