

Hjúkrunarfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Viltu starfa í öflugu teymi þar sem fagmennska, þróun og raunveruleg áhrif skipta máli?
Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem vilja starfa við sérhæfða geð- og fíknihjúkrun þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu, klíníska færni, batamiðaða þjónustu og stöðugar umbætur.
Á meðferðareiningunni starfar samhent þverfaglegt teymi sem sinnir einstaklingum með alvarlegan og samsettan geð- og vímuefnavanda. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefandi og býður upp á einstök tækifæri til að þróa klíníska færni og sérhæfa sig í geð- og fíknihjúkrun.
Framundan eru spennandi breytingar og áframhaldandi uppbygging þjónustunnar sem skapa tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í þróun meðferðar, þjónustu og teymisvinnu.
Starfið hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hjúkrun og þeim sem búa yfir reynslu og vilja þróa sig áfram í sérhæfðu klínísku umhverfi með markvissri starfsaðlögun, faglegri leiðsögn og fjölbreyttum tækifærum til starfsþróunar.
Leitað er að hjúkrunarfræðingum í 50-100% starfshlutfall í dagvinnu eða vaktavinnu eftir samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 15.ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Um meðferðareininguna
Undir meðferðareininguna heyra:
Unnið er þvert á legu-, dag- og göngudeild sem veitir einstaka innsýn í bataferli skjólstæðinga og fjölbreytt tækifæri til klínískrar þróunar.
Við bjóðum meðal annars upp á
Íslenska
Enska




























































