
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi tók til starfa árið 1993. Eir tryggir umfangsmikla og fjölbreytta starfsemi fyrir lasburða eldri borgara og er meðal stærstu hjúkrunarheimila landsins með samtals 185 pláss. Unnt er að bjóða sérlausnir fyrir ýmsa hópa svo sem aðstöðu fyrir blinda og sjónskerta hjúkrunarsjúklinga, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum svo sem dagdeildir og heimilisdeildir. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% skjólstæðinga útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Endurhæfingardeild á Eir
Viltu þú starfa í gefandi og skemmtilegu starfsumhverfi með sveigjanlegum vinnutíma og góðum tekjumöguleikum?
Við leitum að jákvæðum, stundvísum og samviskusömum einstaklingum til starfa við umönnun á endurhæfingardeild Eirar.
Starfsfólk í umönnun á endurhæfingardeild sinnir fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að hámarka lífsgæði skjólstæðinga, styðja sjálfstæði þeirra og efla vellíðan. Meginhlutverk starfsins felst í þremur þáttum: aðhlynningu, samskiptum og heimilisstörfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar með daglega umönnun skjólstæðinga og þjónustuþega heimilisins.
- Leiðbeinir og aðstoðar skjólstæðinga við persónulegt hreinlæti og aðrar athafnir daglegs lífs í samræmi við getu og óskir viðkomandi.
- Heldur umhverfi snyrtilegu, s.s. þvo og ganga frá þvotti, þrífa og búa um rúm.
- Sinnir reglubundnu eftirliti og svarar bjöllum.
- Þátttaka í daglegu lífi, tómstundum og þjálfun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Aldurstakmark er 18 ár.
- Færni í íslensku.
- Stundvísi.
- Snyrtimennska.
- Góð samskiptahæfni.
- Glaðlegt og jákvætt viðmót.
Auglýsing birt2. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Áreiðanleg aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu hjá Sveitarfélaginu Ölfusi
Sveitarfélagið Ölfus

Starfsfólk óskast í búsetuúrræði Vopnabúrsins
Vopnabúrið

Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Hrafnista Hraunvangi leitar að öflugu starfsfólki
Hrafnista

Starfsmaður í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær

Heimastuðningur Reykjavíkur Norðvestur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Stuðningur við fatlað ungmenni
Fjarðabyggð

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík - Dagvinna
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Háskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum í fjölbreytt og skemmtilegt starf! ✨
NPA miðstöðin