

Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Laust er til umsóknar starf háskólamenntaðs aðstoðarmanns í erfðaráðgjöf á Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala (ESD).
Erfða- og sameindalæknisfræðideild sér um alla alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þar er starfrækt fjölbreytt göngudeild erfðaráðgjafa sem sinna meðal annars erfðaráðgjöf einstaklinga með krabbamein, ýmsa arfgenga sjúkdóma auk erfðaráðgjafar fyrir og á meðgöngu svo dæmi séu tekin.
Starf erfðaráðgjafa verður sífellt fjölbreyttara með framförum á sviði erfðafræði og er þetta spennandi tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í innleiðingu nýrra verkefna á deildinni. Á deildinni er þverfaglegt starf og daglegt samstarf með öðrum heilbrigðisstéttum deildarinnar og starfsfólki rannsóknarstofu. Góður starfsandi er ríkjandi og markvisst er unnið að umbótum á deildinni. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Starfið veitist frá 1. nóvember 2026. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu, virka daga.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska


















































