

Sálfræðingur í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu
Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa tvo metnaðarfulla og sjálfstæða sálfræðinga með góða samskiptafærni og áhuga á að vinna með fólki sem er að takast á við bráðan geðvanda.
Störfin eru staðsett í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu. Þar starfar þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsfólks og er starfsemin fjórþætt:
-
bráðamóttaka sjúklinga sem eiga við bráð geðræn veikindi að stríða
-
skammtíma eftirfylgd eftir komu í bráðaþjónustu
-
ráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttöku í Fossvogi
-
ráðgjafaþjónusta fyrir legudeildir Landspítala
Lögð er áhersla á öfluga þverfaglega teymisvinnu og stöðuga þróun.
Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir sálfræðinga sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítali er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi.
Hjá sálfræðiþjónustunni starfa um 80 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð. Lögð er áhersla á að sálfræðingar á Landspítala fái öfluga handleiðslu og símenntun í faginu.
Ráðið er í starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðileg inngrip og ráðgjöf
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði í samræmi við reynslu
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu á Landspítala
- Þátttaka og uppbygging á þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
- Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu og sálmeinafræði
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum til að vinna með aðkallandi vanda t.d. gerð viðbragðsáætlunar við sjálfsvígshættu er kostur
- Áhugi á að vinna í spítalaumhverfi, reynsla af því að hafa unnið í spítalaumhverfi er kostur
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
- Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta æskileg
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Íslenska









































