

Sálfræðingur á endurhæfingardeild Grensási
Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa metnaðarfullan og sjálfstæðan sálfræðing með góða samskiptafærni og mikinn áhuga á vinnu með fólki í endurhæfingu.
Starfið er staðsett á endurhæfingardeildinni á Grensási sem sinnir fjölbreyttum hópi fólks sem á það sameiginlegt að hafa tapað færni, tímabundið eða varanlega, vegna slysa eða veikinda. Starf sálfræðings á Grensási hefur það markmið að hjálpa fólki að tileinka sér sálfræðilegar aðferðir til að takast á við sálrænan og líkamlegan vanda. Þetta felur í sér greiningu á vanda, meðferð og fræðslu.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir sálfræðinga sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Sálfræðingur á Grensási starfar í þverfaglegu teymi í líflegu starfsumhverfi.
Hjá Sálfræðiþjónustunni starfa um 80 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð. Lögð er áhersla á að sálfræðingar á Landspítala fái öfluga handleiðslu og símenntun í faginu.
Ráðið er í starfið frá 15. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Íslenska



































