

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á K1, sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra á Landakoti. Deildin er 18 rúma deild sem sinnir sérhæfðri endurhæfingu.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni og hafa áhuga á stjórnun og þróun þjónustu og endurhæfingar. Sveigjanleiki er varðandi vinnutíma og lögð er áhersla á gott samstarf og samskipti við samstarfsfólk, skjólstæðinga og aðstandendur.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með hjúkrunardeildarstjóra og öðrum stjórnendum að skipulagningu hjúkrunar, innleiðingu nýjunga og þróun starfshátta sem byggja á gagnreyndri þekkingu og stuðla að stöðugum umbótum.
Starfshlutfall er 100% og er upphaf starfa samkomulag en æskileg að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Sigurlaug, deildarstjóri. Velkomið að hafa samband og koma í heimsókn.
Landakot er inngildandi vinnustaður þar sem fjölbreytileiki fær að njóta sín og mannvirðing er höfð að leiðarljósi.
Íslenska












































