

Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Við leitum eftir jákvæðum og lífsglöðum sjúkraliða sem hefur áhuga á að hjúkra öldruðum.
Bráðaöldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi er bráðadeild með 20 rúm og fer þar fram greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Á deildinni starfar samhentur þverfaglegur hópur. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk á deild.
Vinnutími og starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag og dagvinna kemur vel til greina.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun. Ef þig langar að vita meira er þér velkomið að hafa samband við Sólbjörgu, deildarstjóra, og fá að kíkja í heimsókn.
Íslenska












































