Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Sérfræðingur í skyndihjálp

Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir jákvæðum og framsýnum sérfræðingi í skyndihjálp. Starfið hentar vel skipulögðum einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund og áhuga á að stuðla að öryggi og velferð samfélagsins.

Sérfræðingur í skyndihjálp tilheyrir fjáröflunar- og kynningarsviði Rauða krossins og ber sá aðili ábyrgð á að tryggja gæði og samræmi í námskeiðahaldi, styður við samstarfsfólk sitt í teyminu og leiðbeinendur. Viðkomandi kemur að þróun og nýsköpun í fræðslu og kennsluaðferðum sem og samskiptum og sölu við viðskiptavini, fyrirtæki o.s.frv.

Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og kynning á skyndihjálp
  • Tryggja gæði, fagmennsku og samræmi í námskeiðahaldi í skyndihjálp
  • Utanumhald á skráningu og réttindamálum leiðbeinenda í skyndihjálp
  • Stuðla að þróun námskeiða, kennsluhátta og stafrænna lausna
  • Umsjón með umbótaverkefnum, gæðavinnu og þróun námsefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi (leiðbeinendaréttindi í skyndihjálp frá Rauða Krossinum æskileg).
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Reynsla af starfi með sjálfboðaliðum, félagasamtökum eða samfélagsverkefnum er kostur.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
  • Sveigjanleiki
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar