Skrifstofustarf á Akureyri
Við leitum að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa á skrifstofu okkar á Akureyri. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á nákvæmni, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskipti.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og samskiptum í jákvæðu og góðu starfsumhverfi, er lausnamiðaður og á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni samtímis. Viðkomandi verður hluti af öflugu teymi og vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur, starfsmenn og aðra samstarfsaðila fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Innheimtumál og eftirfylgni með ógreiddum reikningum
Tollaafgreiðsla og gerð tilheyrandi skýrslna
Yfirferð tímaskráninga og eftirfylgni með skráningum
Samskipti við starfsmenn og stjórnendur vegna tímaskráninga
Bókun flugs, gistingar og bílaleigubíla fyrir starfsfólk
Almenn skrifstofustörf og aðstoð við daglegan rekstur
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skrifstofu-, viðskipta- eða bókhaldsgreina, er kostur
Reynsla af skrifstofustörfum, innheimtu eða bókhaldstengdum verkefnum er kostur
Reynsla af tollafgreiðslu og skýrslugerð er kostur
Reynsla af bókhalds-, tímaskráningar- eða öðrum viðskiptakerfum er kostur
Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og nákvæmni
Rík þjónustulund og hæfni í samskiptum

Íslenska