
Arnarlax ehf
Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu.
Arnarlax teymið samanstendur nú af um 170 hæfu fólki á öllum stigum virðiskeðjunnar. Hjá okkur starfar einvala hópur fólks af öllum kynjum og ýmsum þjóðernum sem vinna saman að framleiðslu fyrsta flokks lax til viðskiptavina um allan heim.
Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði, Tálknafirði og Kópavogi, og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum.
Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starf, óháð kyni og þjóðernisuppruna.

Langar þig að selja íslenskan lax á alþjóðamarkaði?
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að ganga til liðs við öflugt söluteymi Arnarlax í Kópavogi. Arnarlax er eina sjóeldisfyrirtækið á Íslandi sem starfrækir eigin söludeild. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur meðal annars í sér sölu, uppbyggingu viðskiptasambanda og þátttöku í þróun vörumerkis og vöruframboðs fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á afurðum fyrirtækisins
- Byggja upp ný viðskiptasambönd og sinna núverandi viðskiptavinum
- Ná settum sölumarkmiðum og fylgja eftir söluferlum
- Taka þátt í þróun vöruframboðs og vörumerkis
- Samskipti og náið samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins
- Þátttaka í erlendum ferðalögum og viðburðum eftir þörfum
- Önnur verkefni tengd starfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu og/eða vörustjórnun
- Góð viðskipta- og þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Mjög góð enskukunnátta er skilyrði; önnur tungumál, t.d. spænska eða franska, eru kostur
- Góð tölvukunnátta er skilyrði
- Þekking á sjávarútvegi eða alþjóðlegum mörkuðum er kostur
- Áhugi á að starfa í alþjóðlegu umhverfi
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Ferðalög og þátttaka í alþjóðlegum viðburðum
- Góð vinnuaðstaða og sveigjanleiki
- Heilsu- og líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

Sölufulltrúi - helgarstarf
Myllan

Hafnarfjörður: Timburafgreiðsla
Húsasmiðjan

Lögfræðingur
Útlendingastofnun

Skrifstofustarf á Akureyri
Frost

Mandarin Speaking Sales Associate KEF - Airport
66°North

Fulltrúi á kjarasviði
Verkfræðingafélag Íslands

Sérfræðingur í skyndihjálp
Rauði krossinn á Íslandi

Varnir og eftirlit (VE) leita að öflugum einstaklingi í fullt starf við meindýravarnir og eftir
Varnir og Eftirlit

Starfsfólk í verslun - Selfoss
JYSK

Langar þig að selja þjónustu sem skiptir stjórnendur og starfsfólk máli? Góðir tekjumöguleikar.
YAY