
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu á sviði öryggis-, velferðar- og bílastæðalausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Heiti fyrirtæksins í Fyrirtækjaskrá er Öryggismiðstöð Íslands hf. Kennitala félagsins er 410995-3369.

Árangursdrifinn söluráðgjafi öryggislausna
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir söluráðgjafa.
Starfið er á sviði Öryggislausna og felst í sölu og ráðgjöf til viðskiptavina á fjölbreyttum öryggislausnum.
Um er að ræða framtíðarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Vinnutími er frá kl. 08-16 virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf til einstaklinga og minni fyrirtækja
- Samskipti við viðskiptavini
- Þarfagreining
- Tilboðsgerð
- Eftirfylgni með viðskiptavinum
- Þátttaka í sölu- og átaksverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar, jákvætt hugarfar, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Góð tölvukunnátta (Microsoft Office 365) og skilningur á tæknilegum lausnum
- Reynsla af sölustörfum og CRM kerfi er kostur
- Framhaldsmenntun er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Kjötkompaní - framtíðarstarf í verslunum
Kjötkompaní ehf.

Starfsmaður óskast í Víkingaheima – The Viking World
Viking world saga ehf.

Starfsmaður á skrifstofu
Hæstiréttur Íslands

Icewear Akureyri og Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Sölufulltrúi í verslun
Hegas ehf.

Icewear Þingvöllum óskar eftir
ICEWEAR

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Skagaströnd
Kjörbúðin

Dýrabær á Akureyri - Verslunarstjóri og helgarstörf í boði.
Dyrabær

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Ólafsfirði
Kjörbúðin

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Fullt starf
Heimilistæki / Tölvulistinn

Úthringiver
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.