Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands

Starfsmaður á skrifstofu

Hæstiréttur Íslands leitar að þjónustulunduðum og ábyrgum einstaklingi til starfa á skrifstofu réttarins. Um er að ræða fjölbreytt starf í 80% starfshlutfalli sem felur í sér margvísleg og mikilvæg verkefni á sviði stoðþjónustu.

Leitað er að einstaklingi sem hefur jákvætt viðhorf, sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi, er tilbúinn að takast á við ólík verkefni og býr yfir góðri samskiptafærni.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna í starfsumhverfi þar sem fagmennska, traust og samvinna eru í öndvegi. Starfið heyrir undir skrifstofustjóra réttarins og veitir innsýn í störf æðsta dómstigs landsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og skráning málsgagna ásamt umsjón með pökkun og frágangi þeirra
  • Móttaka dómsmálagjalda og gerð reikninga
  • Móttaka og upplýsingagjöf til þeirra sem til réttarins leita
  • Aðstoð við móttöku gesta
  • Umsjón með tölvupósthólfi réttarins
  • Umsjón með dómsölum fyrir og eftir málflutning og dómsuppkvaðningu
  • Innkaup rekstrarvara og umsjón með kaffistofu, ljósritunaraðstöðu og öðrum sameiginlegum rýmum
  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin af skrifstofustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af skrifstofustörfum
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
  • Nákvæmni, ábyrgð  og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Lipurð í samskiptum og samstarfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur
  • Góð tölvu- og tæknifærni
  • Þekking og reynsla af vefumsjónar- og málaskrárkerfum
  • Mjög góð færni í íslensku og góð færni í ensku
  • Þekking og skilningur á ferli dómsmála er kostur
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lindargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar