

Sérfræðingur í tekjustýringu
Við leitum að öflugum sérfræðingi í tekjustýringu sem vill taka þátt í að þróa og hámarka tekjur hótela okkar. Starfið er fjölbreytt, krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur sterka greiningarfærni og hefur gaman af gögnum.
Við rekum í dag Hotel Cabin, Hotel Klett, Hotel Örk og Hotel Laka, auk þess sem nýtt Moxy Reykjavík mun bætast árið 2028. Við erum því á spennandi vaxtarferð og leitum að einstaklingi sem vill vaxa með okkur.
· Greina bókunarstöðu, eftirspurn og markaðsþróun.
· Setja verð og stýra framboði í samræmi við tekjustýringarstefnu.
· Fylgjast með samkeppnisaðilum og markaðsþróun.
· Vinna með PMS, OTA-rásum og öðrum dreifikerfum.
· Greina árangur kynninga og verðaðgerða.
· Taka þátt í gerð tekjuáætlana, spágerða og reglulegra skýrslna.
· Vinna náið með sölu og markaðsstjóra ásamt bókunarstjóra til að hámarka afkomu.
· Koma með hugmyndir að umbótum og nýjum leiðum til að auka tekjur.
Við leitum að einstaklingi sem
· Hefur góða greiningarhæfni og vinnur markvisst með gögn.
· Hefur gott skipulag og nær að forgangsraða verkefnum.
· Er sjálfstæður en á jafnframt auðvelt með teymisvinnu.
· Hefur áhuga á viðskiptum, verðlagningu og hegðun markaða.
· Hefur góða tölvukunnáttu, sérstaklega í Excel eða sambærilegum greiningartólum.
· Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Kostur er ef þú hefur
· Reynslu af tekjustýringu, verðlagningu eða greiningarvinnu.
· Þekkingu á hótelrekstri eða ferðaþjónustu.
· Þekking af OTA samstarfi mikill kostur
· Reynslu af Godo, Siteminder eða sambærilegum kerfum.
Enska
Íslenska










