Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd.

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga annast afgreiðslu á umsóknum um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Meðal verkefna skrifstofunnar er að taka ákvarðanir um réttindi einstaklinga til atvinnuleysisbóta, greiða bætur og annast eftirlit. Ásamt því að sjá um innheimtur á ofgreiddum atvinnuleysisbótum.

Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna, eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta, tekur þátt í þróun verkferla og öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á. Starfið kallar á samskipti við önnur svið stofnunarinnar og sérfræðiaðstoð við þjónustuþega hennar.

Starfstöð sérfræðings er á Skagaströnd.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við greiðslur, viðurlög og bótarétt. 

·         Afgreiðsla á málum er varða eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta. 

·         Samskipti og sérfræðiaðstoð við önnur svið stofnunarinnar og þjónustuþega hennar. 

·         Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 

·         Góð íslensku- og enskukunnátta. 

·         Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.      

·         Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu. 

·         Góð tölvukunnátta. 

·         Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og opinberri stjórnsýslu telst kostur. 

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Túnbraut 1-3 1R, 545 Skagaströnd
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar