
Hekla
Hekla er leiðandi fyrirtæki í sölu og þjónustu nýrra og notaðra bifreiða frá Audi, Volkswagen, Škoda, Mitsubishi og Ora, framleiðendum sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika.
Hjá Heklu starfar samhentur hópur reyndra og þjónustulipra sérfræðinga sem hafa það að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf. Sterk liðsheild, fagmennska og metnaður einkenna fyrirtækið, sem hefur um árabil verið í fararbroddi á íslenskum bílamarkaði og leiðandi í sölu og þjónustu vistvænna ökutækja.
Við bjóðum upp á alhliða bifreiðaþjónustu og rekum eitt fullkomnasta bifreiðaverkstæði landsins, búið nýjustu tækni og tækjabúnaði. Þar starfa þrautþjálfaðir bifvélavirkjar sem sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum samkvæmt ströngustu gæðakröfum framleiðenda.
Höfuðstöðvar Heklu eru að Þorraholti 2 í Garðabæ, þar sem aðstaða fyrir starfsfólk og viðskiptavini er til fyrirmyndar.
Hekla er hluti af Jökla samstæðunni sem inniheldur m.a. félögin Heklu, Stillingu, Framrúðusöluna (CarGlass) og Dekkjasöluna.
Þjónusta og sala Heklu snýst um þig.

Er bókhald og uppgjör þitt fag?
Við leitum að öflugum liðsfélaga til að starfa með okkur á fjármálasviði í uppgjörum og bókhaldi
Um er að ræða 100% starf
Hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mánaðarleg uppgjör
- Halda utan um fyrningarskýrslur
- Að stemma af skuldastöðu úr fjárhagsbókhaldi við yfirlit frá birgjum
- Að taka á móti reikningum og senda í samþykktarferli
- Að bóka reikninga á viðskiptavini/lánardrottna og innborganir frá þeim
- Almennar færslur í fjárhagsbókhaldi
- Almenn skrifstofustörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi í bókhaldi (5 ár eða lengri)
- Stúdentspróf er æskilegt
- Reynsla af uppgjörum og afstemmingum
- Almenn þekking á viðskiptamanna- og lánardrottnabókhaldi/kostnaðarbókhaldi, og fjárhagsbókhaldi
- Almenn þekking á virðisaukaskatti
- Reynsla af BC skilyrði
- Tölvukunnátta, sérstaklega Excel kunnátta
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptarhæfni og jákvætt viðhorf
- Kostur að vera viðurkenndur bókari
Fríðindi í starfi
Hjá Heklu starfar samhentur hópur fólks. Við bjóðum upp á gott mötuneyti, íþróttastyrkur er í boði fyrir fastráðið starfsfólk ásamt árlegum heilsufarsmælingum. Starfsfólk nýtur afsláttarkjara á vörum og þjónustu fyrirtækisins og tengndum félögum.
Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Laugavegur 174A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

VR á Egilsstöðum
VR

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel