
Norðanfiskur ehf.
Norðanfiskur er framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í að vinna sjávarafurðir fyrir innanlandsmarkað og selur afurðir sínar til verslana, stóreldhúsa og veitingastaða. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri 2001 en flutti starfsemina til Akraness tveimur árum síðar þegar það sameinaðist fyrirtækinu Íslenskt-franskt eldhús undir merkjum Norðanfisks. Norðanfiskur er einnig stór innflutnings- og heildsöluaðili á hinum ýmsu sjávarafurðum og má þar nefna humar, krabba, risarækju, túnfisk og fleira. Höfuðstöðvar Norðanfisks eru á Akranesi en einnig er starfrækt sölu- og þjónustudeild við Tangarhöfða í Reykjavík.
Bókari
Norðanfiskur leitar að reyndum og lausnamiðuðum bókara til starfa á skrifstofu fyrirtækisins á Akranesi. Starfið býður upp á gott tækifæri til að nýta þekkingu á bókhaldi og hafa áhrif á vinnubrögð og taka virkan þátt í þróun skilvirkra fjármálaferla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla fjárhagsbókhalds, afstemmingar og uppgjör
- Birgðabókhald, skráningar og uppgjör framleiðslu
- Reikningagerð og önnur almenn bókhaldsverkefni
- Þátttaka í þróun og umbótum á ferlum og vinnubrögðum í bókhaldi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla af bókhaldi og reikningshaldi fyrirtækja
- Reynsla af Microsoft Dynamics 365 Business Central kostur
- Sterk tæknileg færni og áhugi á að nýta kerfi til hagræðingar
- Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Reynsla úr framleiðslufyrirtæki er kostur
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur26. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturgata 5, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi viðskiptakerfa
Advania

Viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu
Kvika eignastýring hf.

Forstöðumaður Fjárhagsdeildar
Landsbankinn

Fleet manager
Icelandair

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna
Boðleið Þjónusta ehf.

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali

Sérfræðingur í launaþjónustu hjá ECIT
ECIT

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Bókari
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Skrifstofustjóri
Rúko

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun