
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Forstöðumaður Fjárhagsdeildar
Við leitum að framsýnum, metnaðarfullum og traustum einstaklingi í starf forstöðumanns fjárhagsdeildar Landsbankans. Fjárhagsdeild tilheyrir sviði Fjármála og ber forstöðumaður ábyrgð á reikningshaldi, uppgjörum og fjárhagslegri upplýsingagjöf samstæðunnar. Forstöðumaður fjárhagsdeildar leiðir teymi sérfræðinga sem tryggja skilvirka, áreiðanlega og faglega framkvæmd fjárhagsupplýsinga í samræmi við lög, reglur og góða starfshætti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi deildarinnar
- Ábyrgð á fjárhagsbókhaldi samstæðunnar, afstemmingum undirkerfa, innra eftirliti og gæðum fjárhagsupplýsinga
- Áreiðanleg og tímanleg mánaðar-, ársfjórðungs- og ársuppgjör samstæðunnar
- Umsjón með gerð fjárhagsáætlana, greining og miðlun fjárhagsupplýsinga innan samstæðunnar og reglubundið frávikaeftirlit
- Umsjón með kostnaðarbókhaldi og launavinnslu
- Leiða þróun fjárhagskerfa og stöðugar umbætur í verkefnum og ferlum
- Samskipti við ytri og innri endurskoðendur
- Skýrslugjöf til stjórnenda, bankaráðs og eftirlitsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggiltur endurskoðandi og/eða meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun
- Víðtæk reynsla af gerð reikningsskila og fjárhagsuppgjöra
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Mjög góð samskiptafærni og gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur2. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Bókari
Norðanfiskur ehf.

Deildarstjóri fasteigna
Tækniskólinn

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna
Boðleið Þjónusta ehf.

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Skrifstofustjóri
Rúko

Fjármálastjóri FSÍ
Fimleikasamband Íslands

Tæknilegur bókari
Sessor

Chief Executive Officer
Hopp

Director Finance, Fish
JBT Marel

Branch Operations Manager
Indie Campers

Nemi í endurskoðun
Gæðaendurskoðun slf