

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna
Boðleið leitar að viðskiptastjóra hugbúnaðarlausna til að leiða Odoo verkefni viðskiptavina frá þarfagreiningu að afhendingu. Við leitum að einstaklingi með reynslu af verkefna- og teymisstjórnun, góðan tæknilegan skilning og hæfni til að vinna náið með viðskiptavinum og þróunaraðilum.
Hugbúnaðardeildin sinnir innleiðingu, aðlögun og þróun lausna í Odoo fyrir viðskiptavini. Þú heldur utan um samstarf við viðskiptavini, leiðir og styður þróunarteymið í daglegri vinnu og sinnir jafnframt uppsetningu og stillingum í Odoo, prófunum og fræðslu viðskiptavina.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Boðleiðar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig reynsla og hæfni nýtist í starfi.
Nánari upplýsingar fást með því að senda fyrirspurn á [email protected]. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
- Skipuleggja og stýra innleiðingum, þróunarverkefnum og umbótum fyrir viðskiptavini.
- Greina þarfir og verkferla viðskiptavina og móta skýrar verkefnalýsingar í samstarfi við þróunaraðila.
- Leiða og styðja þróunarteymið, forgangsraða verkefnum og fylgja framvindu þeirra eftir.
- Gera verkefna- og tímaáætlanir og fylgjast með umfangi, kostnaði, gæðum og framvindu verkefna.
- Sinna uppsetningu og stillingum í Odoo og prófa lausnir fyrir afhendingu.
- Veita viðskiptavinum ráðgjöf, fræðslu og stuðning við innleiðingu nýs verklags.
- Halda utan um samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og birgja.
- Tryggja góða skjölun og afhendingu lausna.
- Koma að tilboðsgerð og þróun þjónustuframboðs.
- Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði viðskiptafræði, lögfræði eða tölvunarfræði.
- Reynsla af verkefna- og teymisstjórnun eða sambærilegu starfi, til dæmis við kerfisinnleiðingar, hugbúnaðarþróun eða tækniráðgjöf.
- Góður tæknilegur skilningur og geta til að tileinka sér ný kerfi og lausnir.
- Hæfni til að greina viðfangsefni, afmarka verkefni og móta skýrar verkefnalýsingar.
- Hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni fyrir viðskiptavinum.
- Góð samskipta- og leiðtogahæfni.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og eftirfylgni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Reynsla af Odoo eða öðrum viðskiptakerfum er kostur.
- Reynsla af fyrirtækjarekstri, til dæmis veitinga- eða verslunarrekstri, er kostur.
- Sveigjanlegan vinnutíma.
- Hádegismat á vinnustað.
- Fjölbreytt verkefni og náið samstarf við viðskiptavini.
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og verklags.
Íslenska
Enska










